Fara í efni

Skráning kílómetrastöðu

Um áramótin var tekið upp kílómetragjald fyrir akstur rafmagns-, tengiltvinn- og vetnisbíla. Kílómetragjald verður áætlað og greitt með svipuðum hætti og gjöld fyrir þjónustu veitu- og orkufyrirtækja vegna sölu á heitu vatni og rafmagni til heimila og fyrirtækja. Þannig verður greitt mánaðarlega og byggt á fjölda ekinna kílómetra á tímabilinu. Gjaldtakan verður byggð á akstursáætlun á grundvelli upplýsinga sem umráðamenn bíla skrá inn. Vegna áætlunar um akstur er nauðsynlegt fyrir okkur að hafa rétta kílómetrastöðu skráða við upphaf gjaldtöku.

Fyrir árið 2024 er gjaldið 6 krónur fyrir hvern ekinn kílómeter á rafmagns- og vetnisbíla en fyrir tengiltvinnbíla er gjaldið lægra, eða 2 krónur fyrir hvern ekinn kílómetra.

Hér geta leigutakar slíkra bíla skráð km stöðuna.

Aðeins er hægt að skrá ökutæki sem eru í langtímaleigu hjá okkur.
Skráð í kílómetrum. Dæmi: 24599