Fara í efni

Stærsti bílakaupasamningur í sögu Hölds-Bílaleigu Akureyrar

Bílakaupasamningurinn handsalaður af Steingrími Birgissyni, forstjóra Hölds og Jóni Trausta Ólafssyn…
Bílakaupasamningurinn handsalaður af Steingrími Birgissyni, forstjóra Hölds og Jóni Trausta Ólafssyni, forstjóra Öskju. Frá Höldi eru einnig á myndinni Bergþór Karlsson, framkvæmdastjóri og Pálmi Viðar Snorrason, aðstoðarframkvæmdastjóri.

Nýverið var gengið frá stærsta bílakaupasamningi í sögu Hölds-Bílaleigu Akureyrar þegar samningur var gerður við Öskju um kaup á 480 bílum. Um er að ræða bíla af gerðunum Kia og Mercedes Bens.

Að sögn Steingríms Birgissonar, forstjóra Hölds, gera plön fyrirtækisins ráð fyrir að heildarbílakaup ársins verði um 1.600 bílar að andvirði um 8 milljarða króna. „Við hjá Bílaleigu Akureyrar leggjum mikla áherslu á góða þjónustu við okkar viðskiptavini og liður í því er að endurnýja stóran hluta bílaflotans árlega til að tryggja að viðskiptavinir okkar aki um á nýlegum og öruggum bílum. Þá eru orkuskiptin í fullum gangi hjá okkur og hlutfall rafmagns- og tengiltvinnbíla í flota okkar verður vonandi komið vel yfir 30% í árslok 2025 og meðal annars erum við að kaupa 60 stk. Af KIA EV3 long range með drægni uppá rúma 600 km og sem kosinn var World Car of the year nú nýlega”.