Fara í efni

Viðurkenning frá Europcar Group

Þorbjörg Jóhannsdóttir sölustjóri Europcar á Íslandi og Steingrímur Birgisson forstjóri Hölds-Bílale…
Þorbjörg Jóhannsdóttir sölustjóri Europcar á Íslandi og Steingrímur Birgisson forstjóri Hölds-Bílaleigu Akureyrar veittu verðlaununum móttöku í Berlín.

Höldur- Bílaleiga Akureyrar umboðsaðili fyrir Europcar á Íslandi, hlaut verðlaun fyrir góðan árangur í sjálfbærri þróun á heimsráðstefnu  Europcar Mobility Group  sem haldin var í Berlín í byrjun mars. Fyrirtækið var þar verðlaunað fyrir framúrskarandi vinnu við uppbyggingu innviða er snúa að orkuskiptum sem og fjölda rafbíla í flotanum en Europcar á Íslandi er í dag með flesta rafbíla af öllum aðildarlöndum Europcar.  
Höldur-Bílaleiga Akureyrar eru nú með yfir 500 rafbíla í flota sínum frá mörgum framleiðendum en fjöldi rafbíla sem og vistvænna bíla er um 26% af heildaflota fyrirtækisins. 

Á síðustu árum hefur fyrirtækið einnig unnið að uppbyggingu hleðsluinnviða með stækkun heimtauga og uppsetningu á 60 hleðslustöðvum á sex starfsstöðvum fyrirtækisins víða um landið. 
Viðurkenningin er staðfesting á því að fyrirtækið er ekki aðeins í fararbroddi þegar kemur að orkuskiptum bílaflotans á Íslandi heldur einnig í samanburði við önnur lönd sem Europcar starfar í á heimsvísu. Hér er því er um að ræða ánægjulega viðurkenningu á áherslum fyrirtækisins og starfsfólki hvatning til áframhaldandi vinnu í átt að sjálfbærni.