Fara í efni

Persónuverndarstefna

Persónuvernd þín skiptir Höld miklu máli. Stefna þessi tekur til persónuupplýsinga hvort sem þeim er safnað og þær varðveittar með rafrænum hætti, á pappír eða með öðrum sambærilegum hætti. Stefnan tekur til skráningar, vörslu og vinnslu á persónuupplýsingum sem falla undir stefnuna:

Persónuverndarlöggjöf

Um meðferð persónuupplýsinga gilda lög um persónuvernd og meðferð persónuupplýsinga eins og þau eru á hverjum tíma, sem og viðkomandi gerðir samningsins um Evrópska efnahagssvæðið. Taka lögin m.a. á vinnslu, vörslu og miðlun persónuupplýsinga.

Ábyrgð

Höldur ber ábyrgð á skráningu persónuupplýsinga og meðferð þeirra upplýsinga í starfsemi sinni. Höldur ehf. með aðsetur að Tryggvabraut 12, 600 Akureyri, eru löglegir stjórnendur persónuupplýsinga sem þú veitir fyrirtækinu. Hægt er að hafa samband við okkur að Skútuvogi 8, 104 Reykjavík eða með því að senda skriflega fyrirspurn á personuvernd@holdur.is og með því að hringja í 461 6000.

Söfnun og notkun

Samkvæmt gildandi lögum um persónuvernd og, þar sem við á, samþykki þitt getum við og þjónustuveitendur okkar (sem gætu komið fram fyrir hönd fyrirtækisins) safnað persónuupplýsingum um þig:

  • um nafn þitt, símanúmer og netfang til að geta svarað fyrirspurnum og brugðist við óskum þínum, til að svara spurningum þínum og athugasemdum,

  • um nafn þitt, kennitölu, símanúmer, heimilisfang, netfang, dulkóðað númer kreditkorts, bankaupplýsingar, mat á greiðslugetu, afriti af ökuskírteini eða vegabréfi, vegna bókunar eða leigu bílaleigubifreiða eða annarrar sölu á vöru og þjónustu sem við bjóðum upp á eða höfum milligöngu um,

  • um nafn þitt, kennitölu, heimilisfang, tegund, umfang og dagsetningu viðskipta til að geta uppfyllt skyldu okkar samkvæmt bókhaldslögum,

  • um nafn þitt, heimilisfang, kyn, þjóðerni, símanúmer og netfang, fæðingardag og aldur með þínu samþykki til að geta veitt þér kost á að taka þátt í könnunum, kynningarherferðum með verðlaunum, keppnum og öðrum kynningum og eða til að geta sent þér kynningarefni, tilboð eða sérsniðnar auglýsingar,

  • um nafn þitt og netfang með þínu samþykki til að geta gert þér kleift að nota vef- og samfélagsmiðlasíður okkar,

  • myndbandsupptökum af þér í öryggismyndavélakerfi fyrirtækisins. Tilgangur öryggismyndavélakerfis er einkum öryggis- og eignavarsla, til að gæta hagsmuna fyrirtækisins, viðskiptavina þess og starfsmanna

  • um ferðir þínar í bílaleigubifreið með notkun ökurita, svo sem staðsetningu, hraða og högg - sjá nánar undir Ökuritar.

  • upplýsingar kunna að safnast í hugbúnað bílaleigubifreiðar sé snjalltæki parað við hann, t.d. símtalasaga, tengiliðir og/eða aðrar persónurekjanlegar upplýsingar. Það er á ábyrgð notanda að slíkum gögnum sé eytt úr hugbúnaði að leigu lokinni.

  • upplýsingar kunna að safnast sjálfkrafa s.s. þegar þú heimsækir heimasíður okkar, t.d. IP-tala þín og upplýsingar um tölvukerfið sem er notað. Einnig eru skráðar upplýsingar um hvernig þú notar heimasíðu okkar. Þessum upplýsingum er safnað með notkun vafrakaka (e. Cookies) - sjá nánar undir Vafrakökur.

  • upplýsingar vegna framkvæmdar áreiðanleikakönnunar ásamt afriti af viðurkenndum persónuskilríkjum á grundvelli laga um aðgerðir gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka.

Miðlun

Við seljum aldrei persónuupplýsingar um þig. Við miðlum aldrei persónuupplýsingum til þriðja aðila án þess að samþykki þitt fyrir miðluninni liggi fyrir (sem þér er frjálst að hafna) nema þar sem okkur er það skylt samkvæmt lögum eða í þeim tilvikum sem talin eru upp í IV. kafla eða í næstu málsgrein.

Okkur er heimilt að miðla persónuupplýsingum til þriðja aðila (vinnsluaðila) sem er þjónustuveitandi, umboðsmaður eða verktaki okkar í þeim tilgangi að ljúka við verkefni eða veita þér þjónustu eða vöru sem þú hefur beðið um eða samþykkt. Okkur er einnig heimilt að deila upplýsingum með vinnsluaðilum þegar það er nauðsynlegt til að vernda brýna hagsmuni t.d. við innheimtu á vanskilakröfu. Við deilum einnig upplýsingum, í tölfræðilegum tilgangi, með vinnsluaðilum sem vinna með okkur við gæða- og markaðsstarf. Við afhendum vinnsluaðilunum einungis þær persónuupplýsingar sem eru nauðsynlegar fyrir þá í framangreindum tilgangi og gerum við þá samning þar sem þeir undirgangast skyldu um að halda upplýsingum um þig öruggum og nota þær einungis í framangreindum tilgangi.

Þá er athygli þín vakin á að allt efni sem þú birtir eða deilir á samfélagsmiðlasíðum okkar eru opinberar upplýsingar. Athygli þín er vakin á að með því að tengja saman síðureikning þinn og samfélagsmiðlareikninginn þinn gefur þú okkur leyfi til að deila upplýsingum með veitanda samfélagsmiðlaþjónustunnar og notkun þeirra upplýsinga sem við deilum stjórnast af stefnu samfélagsmiðilsins um persónuvernd. Ef þú vilt ekki að persónuupplýsingum þínum sé deilt með öðrum notendum eða með veitanda samfélagsmiðlaþjónustunnar, skaltu ekki tengja samfélagsmiðlareikninginn þinn við síðureikninginn eða deila efni inn á samfélagsmiðla frá síðunni.

Þriðju aðilar

Persónuverndarstefnan nær ekki til upplýsinga eða vinnslu þriðju aðila en við höfum enga stjórn á né berum ábyrgð á notkun, birtingu eða öðrum verkum þeirra. Við hvetjum þig því til að kynna þér persónuverndarstefnu þriðju aðila, þ. á m. vefhýsingaraðilum þeirra síðna sem geta vísað á okkar, hugbúnaðarfyrirtækja á borð við Facebook, Apple, Google og Microsoft ásamt þeirri greiðsluþjónustu sem þú kýst að nota.  

Verndun

Höldur ehf. leggur mikla áherslu á að vernda vel allar persónuupplýsingar og hefur því yfir að skipa innra eftirlitskerfi sem á að tryggja að ávallt skulu gerðar viðeigandi tæknilegar og skipulagslegar  öryggisráðstafanir.

Við munum tilkynna þér án ótilhlýðilegrar tafar ef það kemur upp öryggisbrot er varðar persónuupplýsingarnar þínar sem hefur í för með sér mikla áhættu fyrir þig. Með öryggisbroti í framangreindum skilningi er átt við brot á öryggi sem leiðir til óviljandi eða ólögmætrar eyðingar persónuupplýsinga eða að þær glatist, breytist, verði birtar eða aðgangur veittur að þeim í leyfisleysi.

Athygli þín er þó vakin á því að þú berð ábyrgð á persónuupplýsingum, t.d. nafni, kennitölu og mynd, sem þú kýst að deila eða senda á almennum vettvangi t.d. í gegnum TripAdvisor, spjallrás eða Facebook síðu Hölds.

Okkar vefsíður nota SSL skilríki sem þýðir að gagnaflutningar til og frá síðunum er dulkóðaður og því öruggari. SSL skilríki varna því að þriðji aðili komist yfir gögn sem eru send í gegn um vefinn til dæmis þegar sendar eru fyrirspurnir og þjónustupantanir af vefsvæðinu.

Við viljum einnig taka fram að gagnaflutningur á internetinu er aldrei fullkomlega öruggur. Þér er því bent á að láta okkur umsvifalaust vita ef þú telur hættu á að tilteknar upplýsingar sem þú hefur gefið okkur séu í hættu.

Varðveisla

Höldur reynir eftir fremsta magni að halda persónuupplýsingum um þig nákvæmum og áreiðanlegum og uppfærir þær eftir þörfum.  Við geymum persónupplýsingarnar þínar í þann tíma sem er nauðsynlegur til að uppfylla markmið þessarar stefnu um persónuvernd nema lengri geymslutíma sé krafist eða hann leyfður skv. lögum. Ef möguleiki er á að persónuupplýsinganna kunni að vera þörf síðar til að uppfylla lagaskyldur, t.d. gagnvart skattyfirvöldum, eða til að höfða eða verjast réttarkröfu, munum við taka afrit af hlutaðeigandi persónuupplýsingum og varðveita þær á öruggu formi eins lengi og nauðsyn ber til.

Réttindi þín

Þú átt rétt á og getur óskað eftir að Höldur veiti þér upplýsingar um þær persónuupplýsingar sem fyrirtækið býr yfir sem og um vinnslu og meðferð upplýsinga um þig.

Þú átt rétt á því í vissum tilvikum að persónuupplýsingar um þig séu leiðréttar eða þeim eytt, t.d. ef upplýsingarnar eru ekki lengur nauðsynlegar í þágu þess tilgangs sem þeirra var upphaflega aflað í.

Beiðni þín verður tekin til greina og þér afhentar upplýsingarnar (þegar það á við) innan hæfilegs tíma, þó með þeim takmörkunum sem réttindi og frelsi annarra gera, þ.m.t. viðskiptaleyndarmál og hugverkaréttindi. Þér verður tilkynnt og gefin skýring ef töf verður á afgreiðslu eða ef ekki er unnt að verði við beiðninni að fullu eigi síðar en mánuði frá móttöku hennar. Þú getur kvartað til Persónuverndar ef við neitum að afhenda þér ákveðnar upplýsingar.

Persónuvernd barna

Persónuupplýsingar um börn yngri en 13 ára er ekki safnað. Höldur kann að óska eftir að foreldri heimili samþykki til að geta veitt barninu þjónustu. Á þessum grundvelli kann t.d. að vera óskað eftir upplýsingum um aldur, stærð og þyngd barns af öryggisástæðum. Að öðru leyti er það ekki stefna Hölds að safna eða varðveita persónuupplýsingar um einstaklinga yngri en 13 ára.

Breytingar

Persónuverndarstefnan er endurskoðuð reglulega og kann því að taka breytingum. Þér er því ráðlagt að kynna þér persónuverndarstefnuna reglulega en breytingar á stefnunni öðlast gildi við birtingu á heimasíðu fyrirtækisins; www.holdur.is.

 

Fyrst samþykkt: 16. maí 2018
Síðast breytt: 24. júní 2022